Tuesday, March 31, 2009

Ingibjörg Steinunn Guðnadóttir

Lítil stúlka kom í heiminn kl.14:23 á þýskum tíma í Darmstadt, Þýskalandi, þann 25.mars 2009. Hún fékk nafnið Ingibjörg Steinunn og er Guðnadóttir. Það vill svo til að mamma hennar er stóra systir mín Hildur Margrét. Jújú ég er búin að eignast litla sæta frænku með sætt rautt hár. Hún er svo yndislega sæt að ég get ekki lýst því í orðum. Því miður fæ ég ekki að hitta hana fyrr en í byrjun júlí þar sem við systurnar þurftum endilega að ákveða að fara og læra í sitthvoru landinu. En svona er lífið. Skelli inn nokkrum myndum af dúllunni:




Er hún ekki yndisleg?!:D

Tuesday, March 17, 2009

Spring break


Þá er loksins hið langþráða spring break hafið. Þetta eru búnir að vera mjöööög ljúfir 3 dagar og ég er ekkert búin að gera af viti sem var alveg nákvæmlega planið. Það er ýmislegt búið að ganga á síðustu daga. Ég byrja á partýinu sem var haldið heima hjá Nataliu, Victori, Tatiönu og Nicole. Þannig er mál með vexti að þau voru að fá sér íbúð, en ekki bara einhverja íbúð heldur sjúklega stóra og ótrúlega flotta íbúð á fínasta verði. Við ákváðum því að það þyrfti að halda uppá það og buðum okkur heim til þeirra í smá partý. Upprunalega átti þetta að vera afmælispartý fyrir mig en það breyttist fljótlega í innflutningspartý fyrir þau. Það var bara rosalega gaman fyrir utan það að ég steig í feitan hundaskít á leiðinni heim úr partýinu. Arnór hló dátt yfir því skal ég segja ykkur.


Nýju herbergisfélagarnir

Á sunnudeginum síðasta skelltum við Nehuian og Halla okkur í bíó á mynd sem var um Geoffrey Holder og konu hans Carmen. Geoffrey er alveg rosalega frægur dansari, danshöfundur, málari, búningahönnuður, leikari og ég veit ekki hvað hann hefur ekki gert. Þetta er alveg ótrúlegur maður og viti menn, hann var á sýningunni. Eftir myndina kom hann í miðjuna á bíósalnum og var að tala við okkur eftir myndina. Hann er núna alveg eldgamall en ennþá alveg rosalega hávaxinn og ótrúlega skemmtilegur maður. Ég sat við enda og hann kemur allt í einu að mér og byrjar að tala við mig. Hann tekur í hendina á mér og spyr mig hvað ég heiti. Þegar ég segi honum það þá biður hann mig um að segja það aftur og aftur og "taste it" eins og hann orðaði það. Þetta er alveg ótrúlega brilliant maður skal ég segja ykkur og hann lét mig lofa sér að ég myndi læra að mála svo að þegar líkaminn minn höndlar ekki lengur að dansa þá geti ég orðið búningahönnuður, haha. Ég held að ég verði bara að standa við það. En þetta var með betri kvöldum ævi minnar. Geoffrey Holder er álíka frægur og Alvin Ailey!!!!

Ég hafði ákveðið að gera ekki neitt í fríinu mínu, bara að slaka á, en svo ákváðum við stelpurnar að fara í nokkra tíma í Steps þar sem við erum að fara í prófin okkar í næstu og þarnæstu viku. Rosalega kvikindislegt af skólanum að hafa prófinu eftir Spring break, bara verið að banna okkur algjörlega að slaka á. En við ákváðum þá stelpurnar að þar sem við erum ekki að fara að vera í tíma í skólanum þá er enginn dress code og við megum klæða okkur eins og við viljum. Í skólanum verðum við alltaf að vera í svörtum bolum o.s.frv. þannig að við Halla skelltum okkur í Capezio og nældum okkur í skærlitaða ballettboli og svo ætlum við að vera í svörtum sokkabuxum í ballett og svoleiðis;) Erum að fara í balletttíma á eftir með uppáhaldsballettkennaranum mínum, ég hlakka mjög til.

Við Ólöf Ruth og Arnór erum búin að kaupa okkur miða á snekkjudjamm. Það verður haldið laugardaginn 28.mars og það er dress to impress. Ég get ekki beðið, hlakk svooo til. Þetta kostaði 40 dollara, er frá 10-3 og frítt áfengi allan tímann. En Ólöf er fyrst að fara til Vegas, næsta mánudag. Brjáluð djammferð svona síðasta Spring Breakið hennar. Hún er náttúrulega að útskrifast í vor.
Síðan er Arnór að fara heim í næsta mánuði, bara 4 vikur þangað til. Ég er farin að vera ansi stressuð að þurfa að standa í því að leita að íbúð ein í maí. Við erum byrjuð aðeins en það þýðir ekkert að vera að leita núna ef við viljum ekki flytja fyrr en í júní. Sem þýðir að ég verð að vera ansi snögg að finna íbúð, flytja öll húsgögnin í hana og vonandi finna einhvern sem vill leigja hana af okkur í sumar. Þetta verður vesen. Kannski endum við bara á því að setja allt dótið okkar í geymslu og finnum bara íbúð fyrir haustið. Sjáum til.

Jæja, nóg komið!

-ÓLöf

Sunday, March 1, 2009

Afmælið mitt.....næstum

Góðan daginn gott fólk og velkomin á fætur. Ég er semsagt vöknuð hér í New York, klukkan hálf9 á sunnudagsmorgni þrátt fyrir að ég hafi ekki farið að sofa fyrr en að verða 3 í nótt. Þannig er nefninlega það að á miðvikudagskvöldinu síðasta var hringt í mig af konu sem heitir María Mjöll. Hún fékk númerið mitt hjá Lilju sem ég þekki úr Listdansskólanum heima. Ástæðan fyrir símhringingunni hennar er sú að hún ætlar að bjóða okkur að vinna á Þorrablóti Íslendingafélagsins hér í New York en það var haldið í gærkvöldi. Í fyrstu ætlaði ég ekki að taka starfinu því að ég ætlaði að hafa örlítið afmælisboð í gær en svo þegar hún sagði mér að þetta væru 100 dollarar á mann þá ákváðum við bara að slá til, og sjáum svo sannarlega ekki eftir þeirri ákvörðun. Þannig að í gær um 6 leytið mættum við Arnór og Halla á staðinn, 76th and Central Park West. Þetta var kirkja sem okkur fannst soldið fyndið en mjög flottur salur. Þessi kirkja var svona álíka stór og Hallgrímskirkja. Það sem við áttum að gera þetta kvöld var mjög basic og einfalt. Okkar starf í byrjun kvölds var m.a. að taka við miðum og greiðslum þegar fólk labbaði inn og einnig að blanda fordrykkinn og hella honum í glös. Við skiptum okkur öll niður á sitthvort verkefnið. Þegar það var búið var okkar djobb í rauninni bara að hjálpa kokkunum að ýmist bera fram matinn á hlaðborðið og síðan að taka diskana af borðunum en það endaði með því að fólkið kom allt með diskana sjálft fram í eldhús þannig að allt sem við þurftum að gera var að skafa af diskunum og stafla þeim upp. Svo fengum við líka að setja skyrið í diska og skreyta það með sýrópi og lemon curd, það var mjög skemmtilegt djobb;) Síðan byrjaði ballið og þar sem við höfðum það frekar rólegt eftir að hafa gætt okkur á dýrindis íslenskum þorramat þá máttum við skella okkur á dansgólfið og taka nokkur spor. Það var sko ekki amalegt. Ógeðslega fyndið samt að þetta var haldið í kirkju. Plötusnúðarnir voru bakvið altarið og allir djammandi og djúsandi, í Kirkju!!! Og gaman líka að segja frá því að það var fullt af íslendingum þarna sem ég vissi ekki einu sinni að væru í New York m.a. Jón Ragnar, Þorvaldur Davíð (vissi reyndar að hann er í Julliard), Ari Bragi, Sindri Eldon, Heiða úr Idolinu og margir fleiri!
Þegar kvöldinu var að fara að ljúka, en það átti að enda klukkan 1, þá hófum við að taka glösin og tómar flöskur af borðunum. Það tók sko sinn tíma, við vorum að því frá rétt rúmlega 11 til hálf2. En það var ekki allt sem við gerðum í lok kvöldsins. Þar sem það var svo óhemju mikill afgangur á mat þarna þá fengum við að næla með okkur 6 stykkjum af saltkjöti, 2 hangikjötum, fullt af rúgbrauði og skyri, snittubrauð, harðfisk, sýróp, lemon curd, hvítvín, heila flösku af London Dry Gin sem einhver hafði skilið eftir og ég veit ekki hvað og hvað. Semsagt matabirgðir fyrir næsta mánuð sem er alls ekki slæmt. Og ofan á það fengum við 100 dollara á mann fyrir kvöldið. Þetta var ljúft kvöld!

Þá er afmælið mitt í dag, og kannski líka pínu í gær;). Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni af deginum. Ég hugsa að við skellum okkur  á eitthvað gott kaffihús, kannski bara Corner Café, og snæðum okkur á einhverjum dýrindishádegismat. Síðan ákváðum við í gær að við ætlum að klúbbast næsta laugardag, þurfum bara að redda nokkrum skilríkjum og þá erum við good to go. Ég er orðin soldið þreytt á partýum hérna heima hjá okkur. Það verður sweeeeeeet!!!

En nóg í bili. Ólöf afmælisbarn:D