Afmælið hennar Hildar var 10.febrúar og fórum við eins og alltaf á afmælum á kínverska kjúllastaðinn okkar og fengum okkur chicken wings. Reyndar var eitt alveg sjúklega fúlt að þeir áttu ekki sterku sósuna þannig að við gátum bara fengið hvítlaukskjúlla og bara venjulegan djúpsteiktan kjúlla með engu bragði. Við ákváðum að skella okkur á það og svo auðvitað nóg af bjór. Fórum síðan örstutt á Irish Pub og svo bara heim þar sem það var þriðjudagur og skóli daginn eftir. Á laugardeginum síðasta var síðan afmælispartý hérna. Gekk bara þokkalega fyrir utan það að það komu miklu fleiri en var talið og það var pakkað hérna, oooof crowded. Þessi íbúð er hreinlega ekki nógu stór fyrir svona mikið af drukknu fólki. Arnór endaði með því að læsa sig inná baðherbergi með teppi og kodda og fór að sofa. Síðasta vika var nú ekkert eitthvað svakalega viðburðarrík, fyrir utan að mér fannst hún aldrei ætla að enda og ég var orðin ansi þreytt í gær. Ákvað nú samt að skella mér í nokkra drykki með krökkunum beint eftir skóla og kom heim um hálf11, það var bara mjög gaman.
Í gær fékk ég að vita að ég ásamt fleirum úr hópnum mínum í West African (afró) vorum valin til að dansa á sýningu fyrir kennarann á þriðjudaginn. Ég var svo ótrúlega yfir mig ánægð og glöð að fá loksins að sýna hérna. Höfum ekkert fengið að sýna síðan að við komum. En það er fleira að gerast í næstu viku m.a. erum við að fara á Knicks leik á mánudaginn. Ég er ansi spennt fyrir því líka.
Og hvað er næstu helgi, jú afmælið mitt er næstu helgi. Það lítur allt út fyrir að ég haldi partý en ekki hérna heima heldur er ég að reyna að leigja Irish Pub sem er í Noho. Það væri svo geðveikt ef ég gæti fengið það vegna þess að þá er ekkert vesen með að þrífa eða neitt svoleiðis. Það kemur allt í ljós á mánudaginn hvort það gangi upp. Ég er allavega mjög bjartsýn!!
- Ólöf
