Tuesday, March 17, 2009

Spring break


Þá er loksins hið langþráða spring break hafið. Þetta eru búnir að vera mjöööög ljúfir 3 dagar og ég er ekkert búin að gera af viti sem var alveg nákvæmlega planið. Það er ýmislegt búið að ganga á síðustu daga. Ég byrja á partýinu sem var haldið heima hjá Nataliu, Victori, Tatiönu og Nicole. Þannig er mál með vexti að þau voru að fá sér íbúð, en ekki bara einhverja íbúð heldur sjúklega stóra og ótrúlega flotta íbúð á fínasta verði. Við ákváðum því að það þyrfti að halda uppá það og buðum okkur heim til þeirra í smá partý. Upprunalega átti þetta að vera afmælispartý fyrir mig en það breyttist fljótlega í innflutningspartý fyrir þau. Það var bara rosalega gaman fyrir utan það að ég steig í feitan hundaskít á leiðinni heim úr partýinu. Arnór hló dátt yfir því skal ég segja ykkur.


Nýju herbergisfélagarnir

Á sunnudeginum síðasta skelltum við Nehuian og Halla okkur í bíó á mynd sem var um Geoffrey Holder og konu hans Carmen. Geoffrey er alveg rosalega frægur dansari, danshöfundur, málari, búningahönnuður, leikari og ég veit ekki hvað hann hefur ekki gert. Þetta er alveg ótrúlegur maður og viti menn, hann var á sýningunni. Eftir myndina kom hann í miðjuna á bíósalnum og var að tala við okkur eftir myndina. Hann er núna alveg eldgamall en ennþá alveg rosalega hávaxinn og ótrúlega skemmtilegur maður. Ég sat við enda og hann kemur allt í einu að mér og byrjar að tala við mig. Hann tekur í hendina á mér og spyr mig hvað ég heiti. Þegar ég segi honum það þá biður hann mig um að segja það aftur og aftur og "taste it" eins og hann orðaði það. Þetta er alveg ótrúlega brilliant maður skal ég segja ykkur og hann lét mig lofa sér að ég myndi læra að mála svo að þegar líkaminn minn höndlar ekki lengur að dansa þá geti ég orðið búningahönnuður, haha. Ég held að ég verði bara að standa við það. En þetta var með betri kvöldum ævi minnar. Geoffrey Holder er álíka frægur og Alvin Ailey!!!!

Ég hafði ákveðið að gera ekki neitt í fríinu mínu, bara að slaka á, en svo ákváðum við stelpurnar að fara í nokkra tíma í Steps þar sem við erum að fara í prófin okkar í næstu og þarnæstu viku. Rosalega kvikindislegt af skólanum að hafa prófinu eftir Spring break, bara verið að banna okkur algjörlega að slaka á. En við ákváðum þá stelpurnar að þar sem við erum ekki að fara að vera í tíma í skólanum þá er enginn dress code og við megum klæða okkur eins og við viljum. Í skólanum verðum við alltaf að vera í svörtum bolum o.s.frv. þannig að við Halla skelltum okkur í Capezio og nældum okkur í skærlitaða ballettboli og svo ætlum við að vera í svörtum sokkabuxum í ballett og svoleiðis;) Erum að fara í balletttíma á eftir með uppáhaldsballettkennaranum mínum, ég hlakka mjög til.

Við Ólöf Ruth og Arnór erum búin að kaupa okkur miða á snekkjudjamm. Það verður haldið laugardaginn 28.mars og það er dress to impress. Ég get ekki beðið, hlakk svooo til. Þetta kostaði 40 dollara, er frá 10-3 og frítt áfengi allan tímann. En Ólöf er fyrst að fara til Vegas, næsta mánudag. Brjáluð djammferð svona síðasta Spring Breakið hennar. Hún er náttúrulega að útskrifast í vor.
Síðan er Arnór að fara heim í næsta mánuði, bara 4 vikur þangað til. Ég er farin að vera ansi stressuð að þurfa að standa í því að leita að íbúð ein í maí. Við erum byrjuð aðeins en það þýðir ekkert að vera að leita núna ef við viljum ekki flytja fyrr en í júní. Sem þýðir að ég verð að vera ansi snögg að finna íbúð, flytja öll húsgögnin í hana og vonandi finna einhvern sem vill leigja hana af okkur í sumar. Þetta verður vesen. Kannski endum við bara á því að setja allt dótið okkar í geymslu og finnum bara íbúð fyrir haustið. Sjáum til.

Jæja, nóg komið!

-ÓLöf

1 comment:

Anonymous said...

LOKSINS!!! Ég segi ekki annað.
En ó mæ nett að hitta þennan gaur þó ég viti ekkert hver það er, verð bara að trúa þér með frægð hans!!

Og Las Vegas beibí? Ég hata þig smá akkúrat núna!!! hehe

Hlakka til að sjá þíg í sumar baby