Thursday, October 2, 2008

IKEA

Miðvikudagurinn var ansi erfiður skal ég segja ykkur. Ég mætti auðvitað í skólann eins og venjulega kl.8:30 og var síðan búin kl.4:20 (eins og venjulega). Við Arnór höfðum ákveðið að skella okkur í IKEA þá til að kaupa svona það nauðsynlega eins og stendur, kommóðu fyrir hann, skóhillu og margt fleira. Þannig að beint eftir tíma þurfti ég að drífa mig niður í sturtu í skólanum svo að við gætum skroppið bara beint þar sem maður hoppar ekkert bara uppí bíl og er kominn í IKEA innan hálftíma. Þvert á móti þá þurftum við að taka lestina til Brooklyn í rúman hálftíma og skipta síðan yfir í rútu sem keyrði okkur í IKEA. Við vorum komin á leiðarenda um 10 mínútur í 6, sem okkur fannst nú bara helvíti góður tími. Tókum okkur góðan tíma í IKEA, að finna stöff sem okkur vantaði og fundum líka bara fullt af dóti. Skelltum okkur síðan í teríuna og fengum okkur sænskar "frikadellar":D. Þær voru ljúffengar. Þegar við síðan komum að kassanum þá sáum við þessa líka svaka sniðugu kerru, til að drösla dóti með og í stað þessa að borga 90 dollara í heimsendingu þá keyptum við bara þessa kerru á undir 20 dollara og keyrðum kommóðuna, stólinn og skógrindina í kerrunni heim. Þetta gekk svona þokkalega, nema þegar það koma að því að halda á þessu öllu saman um tröppur á lestarstöðum þá vandaðist málið. En það er nú svo nice fólk hérna í New York þannig að við fengum hjálp oftar en einu sinni. Tókum reyndar vitlausa rútu til baka frá IKEA sem keyrði okkur á allt aðra lestarstöð en okkar þannig að við þurftum að taka 3 lestar, dröslandi kommóðu, bala og fleiru með okkur. Það var pirringur á mann á tímabili en þetta reddaðist allt saman á endanum og við hlægjum að þessu núna:D! 
Það var reyndar eitt mjög fyndið að þegar við vorum að labba síðasta spölin heim, frá lestarstöðinni okkar, þá hittum við Bourbon. Það fyrsta sem hann gerði var að bjóða Arnór marijúana og dróg upp poka sem hann ætlaði að gefa honum. Mér fannst þetta svoooo fyndið og Arnór bara:"Uuhh, nei takk. Takk samt." Það er allt svo straight forward hérna sko að það er ekki fyndið.

Kveðjur frá Ameríkunni, Ólöf

No comments: