Wednesday, September 24, 2008

Miðvikudagur

Vikan líður eins og ég veit ekki hvað. Þetta líður allt svo hratt hérna þegar það er svona mikið að gera hjá manni sem er nú eiginlega bara jákvætt. Þetta var orðið svo leiðigjarnt hérna þegar við vorum ekki byrjaðar í skólanum, þá höfðum við aldrei neitt að gera. Ég átti bara þokkalega helgi fyrir utan þetta leiðinda atvik þarna á laugardagskvöldinu. En ég reyni bara að láta það fara framhjá mér og hugsa ekki um það, þarf svo að redda mér fölsuðum skilríkjum;). 

Við Halla áttum ljúfan dag á sunnudeginum eftir að ég blótaði dyraverðinu í gríð og erg í blogginu mínu. Við skelltum okkur downtown í Victoria's Secret og ég verslaði pínu smá. Maður getur eiginlega ekki annað en að kaupa sér eitthvað þegar maður fer í þessa búð því það eru alltaf svo góð tilboð í gangi og svona:D. Svo röltum við niður Fifth og alveg niður á Union Square þar sem einhver markaður var. Það er það sem mér finnst svo frábært við þessa borg að þú þarft bara að vera á röltinu einhversstaðar og það er alltaf einhverjir markaðir eða eitthvað sem þú getur fundið og skoðað fullt af skemmtilegum hlutum. Svo er maturinn svo rosalega góður á þessum stöndum; ferskir ávextir, gyro og margt fleira. Þetta er svona hverja einusu helgi. Eftir að hafa skoðað okkur um á markaðnum fórum við í Virgin til að ég gæti keypt mér Sex and The City seríu fyrir næstu vikuna. Er búin að temja mér það og er komin uppí þriðju seríu. Svo er það Friends næst (tók reyndar með mér 1. og 2. seríu á Friends). Halla gerði stórkaup í Virgin og var svo sannarlega ekki að sjá eftir því. Hún keypti sér klassadiska. 
Sáum líka celeb í Virgin. Dverginn sem leikur í Death at a Funeral. Hann leikur í fullt af myndum, man bara ekki akkúrat núna hvaða myndum. 

Eftir stórkaup í Virgin vorum við orðnar ansi soltnar þannig að við fórum í Whole Foods sem var hinum megin við götuna og gripum pízzasneið og ferska ávexti með okkur. Svo má auðvitað ekki gleyma Vitamin Water, það þarf alltaf að fylgja. Þetta er svo ótrúlega gott og það sem er enn betra er að það er rosalega hollt, fullt af vítamínum og svona:D.

Í gærkvöldi skelltum við okkur í bíó. Við ætluðum upphaflega að sjá Vicky Christina Barcelona, nýju Woodie Allen myndina, en allt kom fyrir ekki. Myndin var semsagt ekki sýnd á þeim tíma sem við héldum að hún væri sýnd þannig að við skelltum okkur á Burn before Reading með Brad Pitt og George Clooney. Hún var svosem alveg fyndin, voðalega kaldhæðin, en mér fannst hún eiginlega ekki 12 dollara virði. Reyndar var eitt mjög jákvætt þetta kvöld. Ég var í stígvélunum mínum sem mamma keypti fyrir mig í sumar og ég fékk tvisvar hrós fyrir hvað ég væri í flottum stígvélum. Bara fólk útá götu sem varð bara endilega að segja mér hvað ég var í flottum stígvélum. Svo var stelpan sem var að selja nammið í bíóinu alveg rosalega nice. Spurði okkur á fullu um Ísland og svona. Maður fær það ekki oft frá kvenkyninu hérna á þessum slóðum. Stelpurnar hérna eru almennt mjög bitchy!!!

Næstu helgi ætlum við að bjóða Latínó vinkonunum okkar í heimsókn í ghettóið. Þær eru hálfsmeykar en við kennum þeim á þetta bara. Þær eru svo frábærar. Þær tóku víst alveg klikkað djamm síðustu helgi og við ætlum svo sannarlega að láta þær endurtaka það í þetta skipti með okkur

En ég er farin að tala við kærasta minn á msn!! 

- Ólöf

p.s. endilega kommenta, það er svo gaman að fá komment:D!!

1 comment:

Unknown said...

Oh....ég vildi að það væri orðið svona bissí hjá okkur. Við erum bara ennþá að stússast í leyfismálum, þurfum að finna okkur fyrirtæki til að versla rafmagn og hita hjá og fleira. Frekar súrt. Sendu endilega á mig heimilisfangið þitt, svo ég geti pantað á netinu og sent á þig. :) Bestu kveðjur úr svala haustinu í Darmstadt! :D