Wednesday, September 3, 2008

Fyrsti skóladagurinn minn!

Ég ætla að byrja á því að segja ykkur hvað kom fyrir okkur stelpurnar í gærkvöldi. Hildur sat í chillinu útí gluggakistu eins og venjulega bara að lesa bók og horfa útum gluggann. Ég var inní herbergi að horfa á Friends og Halla var í baði þegar allt í einu Hildur æpir upp og kallar á okkur. Hún sá fokkin mús í íbúðinni okkar undir ofninum, AAAAAAHHHHHHHH. Við fórum alveg á taugum og ég lokaði mig af inní herbergi eins og skot. Ætlaði mér að fara að sofa værum svefni svona fyrir fyrsta skóldaginn. Ég svaf nákvæmlega ekki neitt. Dottaði svona við og við en ég bara gat ekki hætt að hugsa um þessa andskotans mús undir ofninum okkar.
Svo hringdi vekjaraklukkan klukkan hálf7 í morgun ég gat ekki hugsað mér að þurfa að vakna og fara í danstíma. Ég dreif mig úr rúminu eftir eitt snooz og skellti mér í sturtu. Við vorum komnar í skólann rétt rúmlega 8 og tíminn okkar byrjaði kl.8:30. Við vorum saman í Horton-tíma sem var ótrúlega skemmtilegt og kennarinn alveg frábær. Hann heitir Milton Meyers. Eftir Horton var eins og hálfs tíma hlé og við vorum bara að hanga, vissum ekkert hvað við áttum að gera í svona nýjum skóla og svona. Síðan fór ég í Body Conditioning og konan sem kenndi það var alveg ótrúlega fín. Hún var rosalega fyndin í útliti með einhvern skrýtinn klút á hausnum og svona. En ég hlakka mjög til að verða stælt og flott.
Eftir Body var ég ein í tveggja og hálfs tíma hléi og svo kom ballett. Maðurinn sem var að kenna var alveg ótrúlega fyndinn í útliti, rosalega grannur og hávaxinn, frekar gamall með vangefið mikinn útsnúning. Hann lét okkur gera auðveldustu æfingar í geimi og ég trúði því ekki að ég væri í þessum hóp. Að ég væri svona léleg að vera sett í þennan hóp. Mér leið eins og að ég væri að taka risaskref niður á við. Vorum að gera æfingar eins og ég var að gera fyrir svona 10 árum síðan. Mér finnst það glatað og ég vona að annað hvort sjái hann að ég eigi ekki að vera þarna eða að ég verð bara langbest í mínum hóp. Ég náttúrulega var alveg frekar mikið veik þegar placement tímarnir voru, þegar við vorum sett á level, þannig að ég var glötuð þann daginn. Just my Luck! En já ég var orðin svo ótrúlega pirruð yfir þessum hóp og þessum tíma að ég gat ekki hugsað um annað. Nú er ég búin að róast aðeins niður og vona að jazz-tíminn á morgun slái í gegn. Hlakka mjög til. Er heldur ekki í eins miklum hléum á morgun:D.

Þetta var fyrsti dagurinn minn í skólanum og ég vona svo sannarlega að næstu dagar verði betri.

- Ólöf -

No comments: