Það er sunnudagur í Harlem og ég sit á kaffihúsi hverfisins, La Perle Noire, en þar kemst ég á netið. Fékk mér "iced café latte" sem er dýrlegt:D.
Við fórum í skólann á föstudaginn á fund fyrir international nemendurna. Það var alveg slatti af fólki sem var að byrja sem er international. Fólk alls staðar að. Frá Hollandi, Frakklandi, Slóveníu, Costa Rica, Kólumbíu og Kanada. Ég hlakka mjög til að kynnast þessum krökkum betur. Þau virtust öll alveg ótrúlega nice og allt við þennan skóla er bara frábært. Konan sem sér um okkur útlendingana er alveg frábær. Svo vorum við að kynna okkur öll og við Hildur og Halla sátum allar í röð. Sögðum allar nöfnin okkar, Hildur-Halla-Helga, og allar bara "WHAT?". Ég semsagt ákvað að láta fólk kalla mig Helgu því allir halda að Ólöf sé strákanafn:(. En við sögðum nöfnin okkar aftur hægt og þá kom þetta hægt og rólega.
Í gær fórum við stelpurnar alveg syðst á eyjuna til að skoða southstreet seaport, brooklynbridge og svona. Við tókum ferjuna sem fer yfir á Staten Island og sáum þá frelsisstyttuna og ýmislegt fleira. Það var líka rosalega gaman að sjá Manhattan svona langt í burtu. Okkur datt ekki í hug að fara að stoppa á Staten Island, því það er víst algjört skítapleis þannig að við hlupum af ferjunni til að komast yfir á næstu ferju sem var að fara af stað. Þegar við vorum komnar aftur á heimaslóðir, Manhattan, röltum við aðeins innar á eyjuna og komumst á Broadway. Við Hildur ákváðum að okkur langaði að shoppa og Halla fór heim til að redda símamálum hjá henni.
Við Hildur löbbuðum alveg frá Southstreet alveg uppá 60. stræti sem er fáránlega langt;). Við kíktum í nokkrar búðir í leiðinni og ég keypti mér langþráða hlíraboli í Banana Republic og geisladisk og Sex and the City í Virgin. Þetta var rosalega skemmtilegt og þegar við eignumst aðeins meiri pening þá kannski leyfum við okkur að fara í Prada, Fendi og þær allar búðir;). Við Hildur vorum semsagt á labbi frá 12 til 7 um kvöldið. Þá drifum við okkur heim því við vorum orðnar ansi svangar.
Við stelpurnar elduðum okkur maccarónur í mjólk með kanilsykri. Hafði aldrei smakkað það áður en ég var nú alveg að fíla það. Mjög góður matur:D. Eftir það skruppum við allar í sturtu því án gríns þá verður maður að fara í sturtu eftir daginn því maður svitnar eins og ég veit ekki hvað í þessum hita hérna. Stelpurnar voru í djammstuði og vildu gera eitthvað skemmtilegt, kíkja á bari og svona. Við reyndum það nú í vikunni að fara að djamma, með Ólöf Ruth, og við máttum ekki vera neins staðar útaf því við erum ekki 21. Þetta er svoooooo glatað að mega fara inná staðina heima á Íslandi en svo flytjum við hingað og þá er bara allt bannað aftur. Allavega þá fóru stelpurnar út í gær í leit að líbó stöðum en fundu enga. Þær gáfust og fóru heim. En við hliðiná okkur er svona barber shop og alltaf einhverjir gaurar fyrir utan. Mjög gaman því við erum alveg farnar að heilsa þeim og læti. Þeir allavega byrjuðu að tala við stelpurnar í gær þegar þær voru að koma heim og buðu okkur að koma í BBQ á morgun, labor day, og svo í partý næstu helgi. Þannig að við erum safe allavega með næstu helgi;).
Það er allaveg rosalega gaman hjá okkur og allt gengur mjög vel. Getum ekki beðið eftir að byrja í skólanum og fá harðsperrur og læti.
Heyrumst seinna, Ólöf
Sunday, August 31, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Hæ skvís, gaman að lesa póstinn hjá þér, en skemmtilegra að skoða myndirnar, en mér líst vel á íbúðina. Ég sé að þetta er mikið menningarheimili, piparkvörn og coctailhristarar í fleirtölu :) love Ásta frænka
Post a Comment