Wednesday, August 27, 2008

Komin aftur!

Loksins fékk ég að komast inná netið. Tölvan mín er eitthvað mjög mikið á móti mér þessa dagana, vill ekki leyfa mér að komast á netið en af einhverjum ástæðum kemst tölvan hennar Hildar alltaf inná netið. Þannig að ég fæ bara að fara inní hennar tölvu!
Við semsagt fórum fyrsta daginn okkar í skólann í gær og ég var veik. Ekki beint það besta því við fórum í placementclasses í gær sem þýðir að það var verið að meta okkur hvar við værum stödd í dansinum. Ég gat ekki rassgat í ballett og lenti því á level 3 en hinar stelpurnar tvær lentu á 4. Ég var svo ótrúúúlega pirruð að ég get ekki lýst því. Þær fóru eitthvað út að skoða borgina eftir á en ég fór bara beinustu leið heim í náttföt og svaf eiginlega allan daginn yfir Friends, þunglynd og veik:(. En ég er búin að ákveða að gera bara það besta úr þessu. Er í móderntímum með stelpunum en annars erum við alltaf í sitthvorum tímunum. Þær eru alltaf saman en ég fæ þá bara að kynnast fullt af nýju fólki í staðinn:D, alltaf gaman. Fórum svo í dag í skólann til að skipuleggja stundatöfluna, segja hvað við ætluðum að velja og svona. Ég verð semsagt í klassík, módern (Horton), Jazzi, Body conditioning og theater arts. Theater arts eru bóklegir tímar, bara listdanssaga held ég.
Síðan fórum við hitta Starker White en hann skoðaði íbúðina fyrir okkur á sínum tíma;). Hann er alveg ótrúlega nice náungi og tók okkur á Sushistað. Ójá, þið eruð að lesa rétt, ég borðaði Sushi. Þetta er ekki eins slæmt og ég var að búast við því ég hafði smakkað það áður og fannst það ógeð en núna var það bara ágætt. Held samt að ég sé komin með í magann eftir það:/. En það var rosalega gaman að kynnast honum Starker og við töluðum heillengi. Svo ætlar hann að hjálpa okkur með partý og svona, láta okkur vita um aðalstaðina og svona:D.
Hittum líka Ólöfu Ruth áðan:D og röltum með henni 5th avenue! Ætlum svo að fara aðeins út á lífið í kvöld! Í fyrsta skipti síðan við komum. Jeij, hlakka til!

Þá kveð ég að sinni kæru börn. Skelli kannski inn fleiri myndum þegar ég verð búin að taka fleiri. Hildur er allavega búin að skella fullt af myndum inná sína síðu, getið séð linkinn hérna til hægri!

Heyrumst ljúflingar, Ólöf

No comments: