Saturday, August 23, 2008

Dagur 2

Það er laugardagur hjá okkur hérna í Harlem og bara blíðan úti, eins og venjulega. Það er búinn að vera steikjandi hiti í allan dag. Við ákváðum að í dag þyrftum við nú að sýna henni Hildi litlu borgina eitthvað, þar sem hún hafði aldrei komið til NYC. Við hófum ferðina á Times Square og kíktum svo líka í nokkrar búðir;). Eftir langt rölt um borgina ákváðum við að fá okkur að borða. Skelltum okkur í WholeFoods (sjúklega gott) og fengum okkur svona matabakka. Það var hægt að velja úr svooo miklu, salati, indverskum mat og margt margt fleira. Og svo auðvitað eftirréttir. Reyndar er þetta svolítið dýrt fyrir okkar smekk en við sættum okkur við þetta svona einu sinni. Við fórum í Central Park til að borða þetta, en þar voru einhverjir hippar að tala um frið og konurnar voru allar berbrjósta. Svo kom kona líka að okkur bara: "Hey, you are not showing your boobs." Haha, mjög fyndið, en við ákváðum að ganga ekki svo langt.

Þegar við vorum orðnar saddar röltum við í subway til að taka lestina niður á 34. stræti þar sem við þurftum að skella okkur í Kmart til að kaupa skrúfjárn, öðruvísi gátum við ekki sett borðið okkar og kommóður saman;).

Nú var komið að því að ég þurfti voðalega mikið að fara á klósettið þannig að við fórum inní næsta Starbucks og ég ætlaði að fá að fara á klósettið. Klósettið sagði occupied þannig að ég beið bara. Þegar ég var búin að bíða í svona korter þá ákvað ég að taka í húninn til að sjá hvort það væri ekki alveg örugglega læst. Jú, það var læst. Beið ég í aðrar 5 mínútur þegar loksins einhver ógeðslegasti kall opnaði hurðina. Hann var ístuttbuxum með opna skyrtu og bumbuna lafandi út. Hárið ógeðslega skítugt og með skegg. Hann kom út og byrjðai að ÖSKRA á mig að ég væri "retard" og "fucking bitch" að hafa tekið í hurðarhúninn þegar það stóð occupied. Svo skellti hann hurðinni á klósettinu sjúklega fast og hélt áfram á æpa á mig. Ég var svo ótrúlega hrædd sko og hélt að hann ætlaði að ráðast á mig en þá kom maður frá Starbucks-crewinu og ætlaði að vísa honum út. Ég náttúrulega fór ekki á þetta klósett sem var viðbjóðslegt eftir þennan kall, ég get sagt ykkur að hann hefur verið að gera eitthvað allt annað en að kasta af sér hlandi þarna inni. Síðan vildi maðurinn ekkert fara útúr kaffihúsinu og ég, Hildur og Halla hlupum bara út og ég var svo ótrúlega hrædd það sem eftir var. Ég var alltaf að líta aftur fyrir mig hvort hann hefði kannski elt okkur.

Við tókum lestina heim eftir þetta.

- Ólöf

No comments: